Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur hafa nú tekið upp að nýju meirihlutasamstarf sitt í Reykjavík eftir að uppúr slitnaði fyrir rúmum þrjúhundruð dögum. Samstarf flokkanna að loknum síðustu borgarstjórnarkosningum var byggt á traustum málefnalegum grunni og í raun afar farsælt. Nú er vonandi lokið 10 mánaða tímabili í borgarstjórn Reykjavíkur sem var engum borgarfulltrúa, hvar í flokki sem hann stóð, til sóma.
Þegar þáverandi borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, Björn Ingi Hrafnsson, ákvað að slíta meirihlutasamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn vegna REI-málsins, var myndaður meirihluti Samfylkingar, Vinstrigrænna, Framsóknar og Margrétar Sverrisdóttir, sem reyndar var varamaður í borgarstjórn. Sá meirihluti átti sér engar málefnalegar undirstöður, til hans var stofnað til að koma Sjálfstæðisflokknum frá völdum. Það er því holur hljómur í klifi Dags B. Eggertssonar um valdabrölt og klækjastjórnmál Sjálfstæðisflokksins.
Hundraðdagameirihlutinn þurfti að reiða sig á stuðning Ólafs F. Magnússonar sem átti jú sæti í borgarstjórn ólíkt Margréti Sverrisdóttur. Ekki minnist ég þess að neinn úr hópi Samfylkingar eða VG hafi farið nokkrum orðum um heilsufar eða persónu Ólafs á þessum tíma en þegar hann ákvað að starfa með Sjálfstæðisflokknum dundu á honum svo ógeðfelldar og meinfýsnar árásir forystumanna vinstriflokkanna að leitun er á öðru eins.
Til þess svo að bíta höfuðið af skömminni reyndu vinstrimenn í borginni að fá Ólaf til að víkja sæti fyrir Margréti Sverrisdóttur í gær, til þess eins að koma í veg fyrir meirihlutasamstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknar sem þá var í burðarliðnum. Um þetta hafa vitnað bæði Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi VG, og Árni Þór Sigurðsson, alþingismaður og fyrrverandi borgarfulltrúi VG, sem lýsti því beinlínis yfir í fréttum í gær að hann hefði verið gerður út af örkinni af hálfu minnihlutans til að fá Ólaf til að víkja fyrir Margréti. Dagur B. Eggertsson kastar því steinum úr glerhúsi þegar hann sakar aðra um klækjabrögð og valdapólitík.
Mestu skiptir nú að endurnýjaður meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hyggst taka upp þráðinn þar sem frá var horfið. Báðir flokkar hafa lært sína lexíu á því sem undan er gengið og geta nú gengið óhikað til verka við stjórn borgarinnar.
Þessa vikuna beinir Deiglan sjónum sínum að vali á frambjóðendum
demókrata og repúblikana fyrir forsetakosningar sem fram fara í
Bandaríkjunum í haust. Hart er barist innan beggja flokka fyrir
tilnefningunni og geta úrslitin forvalsins í fyrstu ríkjunum haft
úrslitaáhrif.
Löggjafinn tekur sér ýmislegt fyrir hendur og margt af því er bæði óþarft og gagnlaust en sumt hreinlega skaðlegt. Öðru máli gegnir um þingsályktunartillögu sem nú er komin fram um samkeppnisstöðu fyrirtækja í eigu ríkis og sveitarfélaga. Tímabært er að draga hina hljóðlátu ríkisvæðingu fram í dagsljósið.
Lesa...
Eina leiðin til að sporna við þessum veiðiþjófnaði er að beita viðurlagaákvæðum nýrra lax- og silungsveiðilaga 67/2006 fullum fetum.
Samkvæmt 50. gr. laganna varðar það sektum og fangelsi allt að tveimur árum, ef sakir eru miklar, ef maður veiðir í vatni annars manns án leyfis.
Þegar haft er í huga hversu hátt verð þarf að greiða fyrir veiðiréttinn er ekki óeðlilegt að sektir séu í hærri kantinum.
Það er auðvitað hrein og slysaleg tilviljun að þau lið Hermanns Hreiðarssonar falla undantekningalítið milli deilda.
Þá er þetta allt saman klárt; frjálslynd umbótastjórn, Þingvallastjórnin, tekur við landsstjórninni á morgun. Ég hygg að sjálfstæðismenn geti vel við stefnuyfirlýsingu stjórnarinnar unað, þótt vissulega sé þar að finna einhverjar málamiðlanir eins og gefur að skilja.
Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna sendi í dag frá sér eftirfarandi ályktun:
Samband ungra sjálfstæðismanna lýsir yfir ánægju sinni með stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Sérstaklega ber að fagna áherslum ríkisstjórnarinnar í heilbrigðismálum þar sem skapa á svigrúm fyrir einkarekstur, taka upp blandaða fjármögnun og láta fjármagn fylgja sjúklingi. Þá er fagnaðarefni að landbúnaðarkefið verði endurskoðað með það fyrir augum að auka frelsi til hagsbóta fyrir bændur og neytendur. Ungir sjálfstæðismenn taka heilshugar undir þau áform ríkisstjórnarinnar að halda áfram að lækka skatta á einstaklinga og fyrirtæki. Mikilvæg er einnig sú yfirlýsing í stjórnarsáttmálanum að ýtrasta aðhalds verði áfram gætt í rekstri hins opinbera og að hlutur opinberrar starfsemi af þjóðarframleiðslunni vaxi ekki umfram það sem nú er.
Samband ungra sjálfstæðismanna óskar nýjum ráðherra flokksins, Guðlaugi Þór Þórðarsyni, velfarnaðar í starfi heilbrigðisráðherra. Guðlaugur Þór var formaður SUS frá 1993 til 1997 og binda ungir sjálfstæðismenn miklar vonir við aðkomu hans að þessum málaflokki. Mjög aðkallandi er að ráðast í grundvallarbreytingar á heilbrigðiskerfinu, ekki síst í þeim tilgangi að þeir miklu fjármunir sem varið er til heilbrigðismála nýtist sem best.
Glæsilegur sigur Sjálfstæðisflokksins í nýafstöðnum alþingiskosningum, þar sem flokkurinn jók fylgi sitt verulega og bætti við sig þremur þingmönnum, er nú innsiglaður með áframhaldandi forystu flokksins í ríkisstjórn undir forsæti Geirs H. Haarde. Samband ungra sjálfstæðismanna horfir björtum augum til stjórnarsamstarfs við Samfylkinguna. Ekki var grundvöllur fyrir áframhaldandi samstarfi við Framsóknarflokk, þótt það samstarf undanfarin tólf ár hafi reynst þjóðinni afar farsælt. Ástæða er til að ætla að sú frjálslynda umbótastjórn sem nú tekur við sé vel í stakk búin til að takast á við nýjar áskoranir á þeim trausta grunni sem lagður hefur verið á undanförnum árum.
Sjálfstæðisflokkurinn er á ný orðinn langstærsti flokkurinn á Íslandi og allt "tveggja turna" tal er nú úr sögunni. Flokkurinn fékk 25 þingmenn kjörna á Alþingi, aðeins einum minna en í stórsigrinum árið 1999, og er nú í fyrsta sinn stærsti flokkurinn í öllum kjördæmum landsins.
Nýr þingflokkur Sjálfstæðisflokksins undirstrikar bæði sterka liðsheild og þá miklu endurnýjun sem orðið hefur en af 25 þingmönnum er tíu nýir þingmenn. Þá hefur hlutfall kvenna í þingflokknum aldrei verið hærra, átta konur sitja nú í þingflokknum eða rétt tæpur þriðjungur.
Samfylkingarkonan Anna K. Kristjánsdóttir hittir naglann á höfuðið í bloggfærslu sinni um úrslit kosninganna þegar hún segir:
Samfylkingin verður að hætta að ljúga að sjálfri sér og reyna að læra af tapinu.
Vinstriflokkarnir virðast þegar hafa náð samstöðu um fyrstu skattahækkunina, ef þeim tekst að komast til valda í kosningum á morgun.
Leiðarahöfundur Fréttablaðsins vekur athygli á þessu í leiðara dagsins.
Það verður mikil stemmning í kvöld þegar sýnt verður frá beint frá Aþenu. Í kosningamiðstöð Sjálfstæðisflokksins við Kringluna mun Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi og Euróvision-fræðingur, lýsa keppninni.
Þetta próf X-hvað frá Bifröst er eiginlega alveg óborganlega fyndið. Það virðist ekki vera nokkur leið að taka prófið án þess að út úr því komi að maður eigi helst samleið með Samfylkingunni eða VG.
Best er þó niðurstaðan sem kemur þegar hakað er við "Hef enga skoðun" í öllum valmöguleikum. Þá kemur niðurstaðan:
Skoðanir þínar eru í mestu samræmi við skoðanir Samfylkingarinnar
Nokkuð nærri lagi reyndar...
Þrymur gerir reyndar ítarlega grein fyrir því á blogginu sínu hversu sniðugir höfundar "prófsins" eru.
Vaxandi kaupmáttur þýðir hins vegar að launin duga betur. 75%
kaupmáttaraukning yfir ríflega þrjú kjörtímabil þýðir því að það tekur
4 daga að vinna sér inn fyrir því sem áður tók 7 vinnudaga.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í leiðara dagsins á Deiglunni sem er skrifaður af Halldóri Benjamín Þorbergssyni.
Össur Skarphéðinsson er heldur betur tekinn í bólinu eftir að hafa fordæmt unga sjálfstæðismenn fyrir að bjóða nemendum í Háskólanum í Reykjavík í partý. Í ljós kom að gagnrýni Össurar hitti hann sjálfan verst fyrir. Hversu "óheppnir" geta menn verið?!
Minnisglöp Össurar
Síðustu daga hefur Samfylkingin auglýst nýja kynslóð jafnaðarmanna úr röðum frambjóðenda sinna fyrir komandi kosninga. Myndirnar prýðir hópur af ungu fólki ásamt formanninum Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur.
Það er ekki óvitlaust hjá Samfylkinginu að leggja áherslu á að sýna þetta unga fólk. Eflaust þjónar það hagsmunum flokksins betur en að sýna þá frambjóðendur sem eiga raunhæfa möguleika á þingsæti. Samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum fengi Samfylkingin 16 þingmenn kjörna
á laugardaginn og hefur raunar ekki mælst hærri um nokkurra vikna skeið.
Á fundi í Keflavík 2. desember sl. hélt formaður Samfylkingarinnar ræðu, þar sem hún sagði meðal annars:
Vandi Samfylkingarinnar liggur í því að kjósendur þora ekki að treysta
þingflokknum – ekki ennþá, ekki hingað til.
Í ljósi þessara ummæla Ingibjargar Sólrúnar er athyglisvert að skoða hverjir það eru sem sitja munu í "nýjum" þingflokki Samfylkingarinnar að loknum kosningum.
Það skal tekið fram fyrir þá sem ekki til þekkja að svarthvítu myndirnar eru af fólki úr þingflokknum sem formaður Samfylkingarinnar sagði að þjóðin treysti ekki. Litmyndirnar eru af nýja fólkinu, þremur körlum.
Þingmenn Samfylkingarinnar að loknum kosningum verða samkvæmt þessu: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Ágúst Ólafur Ágústsson, Ásta Ragnheiður Jóhannsdóttir, Mörður Árnason, Össur Skarphéðinsson, Jóhanna Sigurðardóttir,
Helgi Hjörvar, Gunnar Svavarsson, Katrín Júlíusdóttir, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Árni Páll Árnason, Guðbjartur Hannesson, Kristján Möller,
Einar Már Sigurðsson, Björgvin G. Sigurðsson og Lúðvík Bergvinsson.
Endurnýjun þingflokksins er fólgin í tilkomu Gunnars Svavarssonar, Árna Páls Árnasonar og Guðbjarts Hannessonar.
Ef þessum þingflokki var ekki treystandi að mati formanns Samfylkingarinnar fyrir fimm mánuðum, af hverju ættu kjósendur að treysta honum nú?
Í dag var jarðsungin í Reykjavík María Tryggvadóttir en hún lést 28. apríl síðastliðinn á 90. aldursári. Eins og lesa má um í minningu um Maríu í Morgunblaðinu var hún dóttir Helgu Jónasdóttur, kennara, og Tryggva Gunnarssonar, bankastjóra.
Tryggvi Gunnarsson, faðir Maríu, var bankastjóri, þjóðkunnur maður og einn af mestu áhrifamönnum í þjóðmálum hér á landi á 19. öldinni. Tryggvi var fæddur árið 1835 og andaðist skömmu áður en María fæddist þann 17. nóvember 1917.
Það er merkileg staðreynd að æviskeið þeirra feðgina, Tryggva og Maríu, spannar tæplega tvær aldir, eða frá 18. október 1835 til 27. apríl 2007, samtals 172 ár.